ELVIS Tamiz, knattspyrnumaður frá Svíþjóð, er kominn til reynslu hjá Grindvíkingum í eina viku og verður með þeim út tímabilið ef hann stendur sig. Tamiz er 23 ára sóknarmaður sem kemur frá grísku félagi en áður lék hann með Kulladal í sænsku 4. deildinni. Gengið var frá félagaskiptum fyrir Tamiz á mánudag, lokadegi félagaskiptanna hér á landi. Áður höfðu Grindvíkingar freistað þess að kaupa Orra Hjaltalín frá Þór á Akureyri, sem hefur skorað 17 mörk í 2. deild í sumar, en Þórsarar höfnuðu tilboði þeirra.