Þar sem það vantar hér á huga spænska boltann og allar evrópudeildirnar þá vil ég biðja þá sem hafa áhuga að senda mér skilaboð og þá bæti ég þá inná listann sem ég mun senda vefstjóra.

Ítalski boltinn er alveg dauður og því væri lang sniðugast að hafa bara eitt áhugamál fyrir allar evrópudeildirnar fyrir utan enska, því hann er lang vinsælastur. Á þessu áhugamáli verður hægt að spjalla um allar evrópudeildirnar eins og gert er hér á enska um ensku deildina. Ástæða þess að ég sendi þetta er vegna þess að spænski og þessar stóru deildir Evrópu hafa ekkert áhugamál hér.

Ég ákvað að senda þetta inn á þetta áhugamál því þetta er virkasta fótbolta áhugamálið.

Ég vona að ég fái einnhver viðbrögð við þessu og það sendi einhverjir skilaboð.

Kveðja vassel.