Smicer að koma sterkur inn! Nú er ljóst að Vladimir Smicer mun koma sterkur inn í lið Liverpool á næstu leiktíð. Vladi, eins og hann er kallaður af kollegum sínum í liðinu, hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá áhangendum Liverpool liðsins frá því hann kom frá Lens. Vladi hefur síendurtekið átt við meiðsli að stríða, en svo kaldhæðnislega vill til að einmitt þegar hann hefur náð sér á strik innanvallar undanfarin ár hafa meiðslin sett strik í reikninginn.

Margir töldu að þegar Smicer var beðinn um að láta 7-una af hendi við komu Harry Kewells yrðu dagar hans taldir á Anfield. Þess í stað hefur kappinn brett upp ermarnar, tekið við treyju númer 11 og viðurkennir sjálfur fúslega að 7-an hafi ekki reynst honum happadrjúg.

Smicer hefur sýnt það og sannað það sem af er undirbúningstímabilinu að hann á fullt erindi í liðsmannahóp Liverpool. Nýtt númer á bakinu hefur gefið honum tækifæri til að endurreisa feril sinn hjá Liverpool og kannski spilar koma Harry Kewells stærri þátt en margan grunar. Það er vel þekkt staðreynd að lið kaupa leikmenn ekki aðeins til að njóta krafta þeirra sjálfra, heldur einnig til að auka samkeppni um sæti í liðinu.

Það verður spennandi að sjá hvernig uppstilling verður fyrir valinu hjá Liverpool á komandi tímabili og jafnframt hvort Smicer verður þar á meðal.