Andy Cole mun ekki leika deildarleik fyrr en 31. mars í fyrsta lagi. Cole var rekinn af velli gegn Sunderland og fær sjálfkrafa þriggja leikja bann.

Cole sem er nýlega kominn á ferðina aftur eftir uppskurð, getur því aðeins leikið leiki í Meistaradeildinni á næstu sjö vikum. Þetta þykir bagalegt fyrir hann vegna þess að nýr landsliðsþjálfari er tekinn við enska landsliðinu. En næstu vikurnar munu enskir knattspyrnumenn keppast við að sýna sig og sanna fyrir nýja þjálfaranum, á meðan Cole sem ekki hefur átt fast sæti í hópnum verður í banni.