Barcelona er sagt hafa gert tilboð í Javier Zanetti, leikmann Inter Milan, upp á 2,4 milljarða íslenskra króna. Zanetti meiddist lítillega í leik með Argentínu gegn Brasilíu í undankeppni HM á dögunum og verður frá næstu vikurnar. Hann hefur lýst því yfir að hann vilji leika áfram með Inter en ákveði Massimo Moratti, forseti félagsins, að selja hann til Barcelona mun Zanetti virða þá ákvörðun.