Steve Coppell er hættur sem knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Crystal Palace en það var sameiginleg ákvörðun hans og stjórnar félagsins. Verður að teljast mjög óeðlilegt að knattspyrnustjórar hætti svo skömmu fyrir mót en deildarkeppnin hefst á Englandi eftir tæpar tvær vikur en þá leikur Crystal Palace gegn Blackburn. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver tekur við liðinu af Coppell.