Boudewijn Zenden er efstur á óskalista George Graham, knattspyrnustjóra Tottenham, eftir að hann seldi David Ginola til Aston Villa. Litlu mátti muna að Barcelona seldi Zenden til Lazio á dögunum en ítalska liðið hætti við á síðustu stundu.

Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Arsenal en í Daily Mail í dag lýsir Graham yfir aðdáun sinni á leikmanninum og má vænta þess að hann geri tilboð í hann á næstu dögum. Zenden er metinn á átta milljónir punda, sem samsvarar 960 milljónum króna.