Ég hef tekið eftir því að United aðdáendur hafa haft ansi hægt um sig síðan um síðustu helgi og er það bara af því góða. Það var kominn tími til að það færi eitthvað úrskeiðis hjá þeim og ekki var verra að það voru mínir menn(West ham) sem tóku þá. Þá fer bikurunum að fækka sem að þeir hafa möguleika á og það er bara að vona að núna fari næstu lið fyrir neðan að taka sig saman í andlitinu og vinna upp aðeins af þessu forskoti því það er ekkert leiðinlegra en að hlusta á Manchester aðdáendur grobba sig yfir öllum titlunum sem liðið hefur eignast á síðustu árum.