STEFÁN Þór Þórðarson skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja þegar Stoke City vann auðveldan sigur á landsliði Manar, 5:1, í leik um þriðja sætið á æfingamóti þar um helgina. Stefán átti einnig hjólhestaspyrnu í stöng og hann var sagður besti maður vallarins. Lið Manar kom mjög á óvart á mótinu með því að sigra enska 1. deildarliðið Burnley en átti aldrei möguleika gegn Stoke. Brynjar Björn Gunnarsson og Bjarni Guðjónsson voru báðir í byrjunarliði Stoke og Kristján Sigurðsson kom inn á sem varamaður.