Middlesbrough hefur keypt framherjann Noel Whelan frá Coventry fyrir 240 milljónir króna. Coventry hefur þar með selt tvo af framherjum sínum á skömmum tíma en um helgina gekk Robbie Keane til liðs við Inter Milan. Whelan segir að Bryan Robson, knattspyrnustjóri Middlesbrough, hafi þrjá milljarða króna til að eyða í leikmenn og sé að undirbúa kaup á mjög sterkum leikmönnum.