Gylfi Einarsson ákvað að hafna tilboði Lyn og skrifaði í gær undir 3 ára samning við Fylki. Hefði hann ekki gert þetta hefði Fylkir ekki fengið neitt fyrir hann, en núna þurfa önnur lið að kaupa kappann af Fylki. Gylfi sagðist ekki vilja skilja öðruvísi við sitt gamla félag.