Hann er aðeins 11 ára skólastrákur frá Liverpool. Hann lifir alveg venjulegu lífi, mætir í skólann á morgnanna kl. 9 og fer á fótboltaæfingar eftir skóla með hverfisliðinu sínu. En það er einn hlutur sem gerir hann sérstakan. Hann er eftirsóttur af öllum bestu liðum Englands!

Hann heitir Adam Pepper og gengur í St. John RC School sem er aðeins í 10 mínútna göngufæri frá Goodison Park, heimavelli Everton. Hann er harður stuðningsmaður Everton og segist líta mjög svo upp til Wayne Rooney og draumur hans er að spila við hlið hans hjá Everton í framtíðinni.

Hann sagði meðal annars í viðtali við Teamtalk að honum væri nokk sama þó að allir þessir stóru klúbbar væru á eftir honum, aðeins einn möguleiki væri inni í myndinni og það væri Everton.

Hann er kominn á samning hjá sama umboðsmanni og Wayne Rooney, Peter McIntosh að beiðni föður Adams og einkaþjálfara, Ronnie Pepper.

Umbinn sagði m.a. að hann hefði að minnsta kosti jafn mikla hæfileika og Rooney þegar hann var á þessum aldri, ef ekki meiri!

Þetta er greinilega einn sem vert er að fylgjast með í framtíðinni!!