Hvers konar könnun er það sem spyr um besta framherjann í Serie A og nefnir ekki Andryi Shevchenko sem valmöguleika?! Heimsk könnun, that´s what! Einstaklega heimskulegt. Þessi snillingur er markahæstur í A-deildinni á Ítalíu, var markakóngur á sínu fyrsta tímabili þar enda lét Zidane hafa eftir sér að hann hefði aldrei séð neinn leikmann sem ætti jafn auðvelt með að skora eins og Sheva. Þetta segir maður sem hefur spilað með Vieri, Del Piero og Inzaghi. Og annað; hvað er þetta með “Ronaldo ekki meiddur”? Af hverju ekki að hafa “Van Basten með heilan ökkla fyrir 10 árum” eða “Maradona edrú og grannur í gúddí fíling”? Könnunin á að sýna álit manna byggt á frammistöðu nú í haust en ekki í einhverju sögulegu samhengi. Hvenær lék Ronaldo síðast eins og snillingurinn sem hann er ?! Hjá Barcelona. Sem sagt langt síðan. Ég blæs á þessa bullkönnun, um leið og ég kýs “Einhvern annan” sem er líklega einhver asnalegur Shevchenko-brandari….enda fær sá liður fína kosningu.