Gylfi Einarsson, landsliðsmaður úr toppliði Fylkis, hefur fengið tilboð frá norska fyrstudeildarliðinu Lyn frá Osló.

Gylfi sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri laus frá samningi við Fylki eftir tímabilið og hann ætli að hugsa málið í einn til tvo daga.