Írski framherjinn Robbie Keane skrifaði í gær undir fimm ára samning við Inter Milan. Ítalska félagið greiðir Coventry einn og hálfan milljarð íslenskra króna fyrir Keane en það er rúmlega helmingi meira en Coventry fékk hann á frá Wolves fyrir ári síðan þannig að hagnaðurinn er mikill fyrir Coventry.