Íslendingar komust upp úr riðli sínum ásamt Uruguay-mönnum, en Indverjar sátu eftir. Íslendingar töpuðu fyrsta leiknum fyrir Uruguay, 2-1, og skoraði Þórhallur Hinriksson mark Íslands. Íslendingar unnu svo Indverja, 3-0, þar sem Tryggvi Guðmundsson fór á kostum og skoraði öll mörk leiksins. Íslendingar komust því upp í átta liða úrslit. Þar mættum við Chile mönnum og töpuðum með tveim mörkum gegn engu.