Sunderland mistókst að minnka muninn Sunderland mistókst að minnka muninn á Manchester United, en þeir gerðu aðeins jafntefli við botnlið Bradford. Leikurinn þótti ótrúlega jafn en frekar óspennandi. Að sögn hefði sigurinn getað lent hvoru meginn sem var. Sunderland heldur þó enn tveggja stiga forustu á Arsenal en Bradford eru eins og áður sagði á botni deildarinnar 5 stigum á eftir Manchester City.