AC Milan vann Juventus í vítaspyrnukeppni! AC Milan unnu í gærkvöldi sinn sjötta sigur í Evrópukeppni Meistaraliða og þann fyrsta á níu árum en þeir höfðu betur gegn Juventus í vítaspyrnukeppni á Old Trafford. Markalaust var að loknum venjulegum leiktíma og því varð að grípa til framlengingar. Í framlengingunni var ekkert skorað og því var framlengt um aðrar 15 mínútur sem einnig voru markalausar og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni.

Í vítaspyrnukeppninni var brasilíski markvörðurinn Dida hetja AC Milan en hann varði þrjár slakar spyrnur Juventus manna á meðan Buffon varði tvær í marki Juventus. Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko tók lokaspyrnuna í vítaspyrnukeppninni sem hann skoraði örugglega úr og tryggði AC Milan sigurinn.



Vítaspyrnukeppnin:
Juventus 0-0 Milan
(Trezeguet misnotar)
Juventus 0-1 Milan
(Serginho skorar)
Juventus 1-1 Milan
(Birindelli skorar)
Juventus 1-1 Milan
(Seedorf misnotar)
Juventus 1-1 Milan
(Zalayeta misnotar)
Juventus 1-1 Milan
(Kaladze misnotar)
Juventus 1-1 Milan
(Montero misnotar)
Juventus 1-2 Milan
(Nesta skorar)
Juventus 2-2 Milan
(Del Piero skorar)
Juventus 2-3 Milan
(Shevchenko skorar)

Kveðja kristinn18