Lee Bowyer Nú er staðan sú hjá fyrrum Leedsaranum Lee Bowyer að hann er laus undan samningum hjá West Ham, en þegar hann samdi við hamrana samdi hann um það að ef til þess kæmi að West Ham mundi falla þá væri hann laus allra mála. Þrátt fyrir mikkla baráttu í leimönnum West Ham féllu þeir og er nú til þess komið að Lee má fara.
Nú fyrir stuttu kom það fram í ensku pressunni að Sir Bobby Robson væri á höttunum eftir kauða og neitaði hann því ekki. En núna fyrir stuttu gerðist sá undarlegi atburður að David O´Leary var ráðinn sem knattspyrnustjóri Aston Villa, en segji ég þett vegna þess að David er mikil eyðslukló, en Aston Vill mikið fyrir að spara (að undanskildri þessari mikklu peningaeyðslu O´Leary er hann frábær knattspyrnustjóri). Eins og flestir vita voru Lee Bowyer og O´Leary báðir hjá Leeds fyrir stuttu og er O´Leary núna sagður vera einnig á höttunum eftir fyrrum liðsfélaga sínum og telja fótboltaspekingar að hugsanlega steli O´Leary honum beinnt fyrir framan nefið á Sir Bobby Robson.
Hinsvegar finnst mér líklegt að Bowyer vilji frekar fara til Newcastle þar sem að þeir verða hugsanlega í toppbaráttunni á næstu leiktíð, en öðru geggnir um Aston Villa. Það er samt aldrei að vita hvað gerist og eftilvill treystir Bowyer O´Leary til þess að byggja upp jafn sterkt lið og Leeds var á sínum tíma, hver veit.