Núna hefur Chelsea fækkað um einn snilling því franski landsliðs-fyrirliðinn Didier Deschamps hefur skrifað undir þriggja ára samning við Valencia, kaupverðið á honum voru 450 milljónir ísl. króna.

Chelsea keypti Deshcamps frá Juventus fyrir ári síðan á 420 milljónir króna en hann náði ekki að sýna sínar bestu hliðar á Stamford Bridge. Hjá Valencia er honum ætlað að fylla skarð miðjumannanna Javier Farinos, sem seldur var til Inter Milan, og Gerard Lopez, en hann skrifaði undir hjá Barcelona í gær.