George Weah, sem fengið hefur frjálsa sölu frá AC Milan, fer að öllum líkindum til Roma. Hann var lánaður til Chelsea á síðustu leiktíð og var í viðræðum við Fulham á dögunum en nú lítur út fyrir að hann verði á Ítalíu á næstu leiktíð. Fabio Capello er þjálfari Roma en Weah lék undir hans stjórn hjá AC Milan.