Líklegt þykir að Robbie Keane verði orðinn leikmaður Inter Milan innan fárra daga en Gabriele Oriali, framkvæmdastjóri ítalska félagsins, hefur verið í viðræðum við stjórnarformann Coventry, Bryan Richardson.

“Við höfum rætt við þá síðasta sólarhringinn og þær viðræður munu halda áfram. Við höfum ýmsa möguleika til að styrkja sóknarlínu okkar og af þeim er Robbie er líklegastur til að ganga til liðs við okkur,” sagði Oriali.