Ensk blöð hafa verið að greina frá því að ferli Fabien Barthez hjá ManU sé lokið. Eins og væntanlega flestir vita er hann á förum frá ManU í sumar og Ferguson er orðinn ansi pirraður á frammstöðu frakkans í síðustu leikjum. Talið er að Barthez hafi ekki verið tekinn útúr liðinu gegn Tottenham vegna meiðsla, heldur hafi Ferguson bara verið búinn að fá nóg.
Ensku blöðin hafa nefnt marga markmenn sem væntanlega arftaka, en þar eru Anti Niemi (Southampton), Carlo Cudicini (Chelsea), Thomas Sorensen (Sunderland), Paul Robinson (Leeds) og Peter Cech (Rennes) efstir á blaði