Rivaldo á leið til Tottenham? Forráðamenn enska liðsins Tottenham, ætla að reyna að næla sig í miðjumanninn Rivaldo í sumar. Fleiri ensk, eins og Liverpool, eru einnig sögð á eftir stráknum, sem verður leystur undan samningi við AC Milan eftir leiktíðina. Tottenham höfðu mikinn áhuga á honum þegar hann fór frá Barcelona til AC Milan.
Sem fyrr segir eru fleiri lið með auga á Rivaldo. Fréttir hafa borist af áhuga Newcastle og Liverpool, en vænta má að fleiri lið munu gera eitthvað til að fá þennan frábæra leikmann í sínar raðir.
Mark Viduka, leikmaður Leeds, fer kannski til Tottenham því Tottenham ætla að bjóða í Viduka fimm milljónir punda. Viduka er búinn að standa sig mjög vel síðustu leikjum með Leeds