Blanc hafnar Manchester United í þriðja sinn
Það verður enginn “koss” næsta vetur á Old Trafford þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Sir Alex Ferguson til að fá Laurent Blanc til United. Blanc hafnaði Manchester í þriðja sinn á dögunum og er staðráðinn að enda feril sinn á Ítalíu. Blanc er nú 34 ára. Ferguson hefur verið rólegur á leikmannamarkaðnum frá því að hann keypti Fabien Barthez á 930 milljónir fyrr í sumar en vildi ólmur fá Frakkann til sín.