- Jeffries boðar uppstokkun hjá Bradford
Ekkert verður af kaupum þýska liðsins Stuttgart á Stan Collymore, en ekkert kom út úr viðræðum hans við forráðamenn félagsins. Collymore verður því aftur að fara á stúfana eftir nýju liði en hann er ekki inni í áætlunum hins nýja framkvæmdastjóra Bradford, Skotans Jim Jeffries, sem boðar uppstokkun í leikmannamálum liðsins