Hermann í búning Charlton Hermann Hreiðarsson hefur skrifað undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Charlton Athletic. Hermann hefur undanfarnar vikur átt í viðræðum við Portsmouth sem er á hraðri leið upp í Úrvalsdeildina en Charlton jafnaði 500 þúsund punda tilboð þeirra og ræddi Hermann við forráðamenn Charlton í gærkvöldi. Fótbolti.net greinir frá því að Hermann hafi skrifað undir samning við félagið í hádeginu eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun.

Charlton greiðir Ipswich Town £900,000 fyrir Hermann. Hann kom frá Wimbledon fyrir metfé á sínum tíma, eða 4,5 milljónir punda en þar sem Ipswich er í greiðslustöðvun má selja leikmenn utan félagaskiptagluggans margfræga. Í vikunni seldu þeir Darren Ambrose til Newcastle United fyrir £1m en lífið eftir fallið úr úrvalsdeildinni hefur reynst þeim erfitt.

Enda þetta á spurningu sem barst inn á vef Sky News:

Hvaða leikmaður hefur ofast fallið úr ensku úrvalsdeildinni í ensku 1. deildina?
Sigurður Bragason, Vestmannaeyjar, Íslandi.

Svar:
Fyrst hélt ég að landi þinn Hermann Hreiðarsson væri sá sem ætti þennan titil, en við fundum óheppnari mann! Ashley Ward slær Hermann út með því að hafa fallið fjórum sinnum (Hemmi þrisvar), í öll skiptin með sitthvoru félaginu. Hann féll úr ensku deildinni með Norwich City (95), Barnsley (98), Blackburn Rovers (99) og Bradford City (01).