Yfirmaður íþróttamála hjá Real Madrid(Jorge Valdano) hefur sagt að ekki sé útilokað að Madridingar reyni að kaupa Francesco Totti leikmann Roma í sumar. Hann sagði hins vegar að Ronaldo færi ekki fet, þrátt fyrir sögusagnir

Copy pastað af gras.is : “Það er engin ástæða fyrir Ronaldo að fara,” sagði Valdano. “Real kaupir sigurvegara, en selur þá ekki. Kaupin á Ronaldo hafa verið góð viðskipti. Við höfum selt um 400.000 treyjur með hans nafni og einnig hefur hann skorað mikilvæg mörk fyrir okkur.”

Í sambandi við Totti sagði Valdano: “Við þekkjum hann mjög vel, hann skoraði mark á móti okkur á Bernabeu og lét okkur finna fyrir því…við sjáum til.”

Forseti Roma, Franco Sensi, segir hins vegar að Totti fari ekki fet.

Kv.Azde