Þeim sextán þjóðum sem þátt taka í Super Soccer Millenium Cup á Indlandi í janúar hefur verið skipt niður í fjóra riðla. Ísland er meðal þessara þjóða og er í 2. riðli. Í 2. riðli eru, auk Íslands, Urugay, Indonesia og Indland. Ísland hefur aldrei áður leikið landsleik gegn þessum þjóðum. Mótið fer fram um miðjan janúar. Landsliðið skipa ekki sterkustu leikmenn okkar Íslendinga, en Tryggvi Guðmundusson er reyndastur okkar manna að þessu sinni.