MAn City hefur ákveðið að stækka sinn stóra framherjahóp en Leeds hefur samþykkt þriggja milljóna punda tilboð Manchester City í framherjann Darren Huckerby. Huckerby mun ræða við knattspyrnustjóra Manchester City, Joe Royle, um laun í dag. Huckerby var keyptur til Leeds í ágúst 1999 til að taka við af Hollendingnum Jimmy Floyd Hasselbaink en hann náði ekki að festa sig í sessi.