Terry Venables er einn óheppnasti þjálfari sem uppi hefur verið í Ensku Deildinni að mínu mati. Ég ætla að segja það strax að ég sé Man Utd-maður.

Þetta er alls ekki lélegur þjálfari heldur eru allir bestu menn hans farnir og þeir eru Rio Ferdinand,Oliver Dacourt, Robbie Fowler, Robbie Keane, Lee Boywer og Woodgate er að fara í dag eini sem er virkilega góður í liðinu er Harry Kewell.

Mér finnst asnalegt þegar fólk er að segja að hann sé heppin að vera hjá Leeds og einhvað í þá áttina hann er mjög góður þjálfari að mínu mati og þið sem segið að það eigi að reka hann þetta er ekki honum að kenna það er Paul Ridsdale (Einhvað þannig) að kenna hann er búinn að selja alla þessa leikmenn og núna eru þeir með menn eins og Radebe í byrjunarliðinu því þeir eiga ekki betri menn.

Þetta er grautfúlt og ég vorkenni honum mjög og ekki vera að segja að hann sé lélegur hann er það ekki, hann fær bara ekki að halda leikmönnunum sínum.

Ef þið mynduð setja ykkur í spor hans hvað mynduð þið gera allir lykilmennirnir farnir og þið gætu ekki einu sinni keypt einhvern meðalmann. Ég persónulega væri örugglega búin að hætta með liðið út af álagningu að það sé verið að segja að ég sé lélegur þjálfari.

En svona er bara samfélagið sem við búum í allir halda að þeir séu svo góðir að þeir geta sagt hann vera lélegur þið gætuð ekkert betur!!!

Takk Fyrir mig kveðja Gilliman