Leeds rær nú öllum árum að því að tryggja sér Robby Fowler. Félagið hefur boðið 10 milljónir punda í Fowler. Það er hörð samkeppni um framherjastöðurnar hjá Liverpool og líklegt þykir að Fowler muni verða seldur. Svo viðrist sem eitthvað hafi slest upp á vinskapinn hjá honum og Michael Owen og það eitt gæti flýtt fyrir brottför hans frá Anfield Road.
þá hfeur West Ham hefur boðið tæpar 10 milljónir punda í argentínska framherjanum Martin Palermo. Palermo, sem leikur með Boca Juniors í Argentínu, hefur verið eftirsóttur af liðum í Evrópu undanfarin ár. Ítalska félagið Napoli hefur einnig boðið í Palermo. Palermo er sterkur framherji og ætti mikið eftir að styrkja hamranna