ÍBV á siglingu Eyjamenn óstöðvandi

Eyjamenn eru heldur betur að vakna til lífsinns í Landssímadeildinni þessa dagana og sigurganga þeirra hélt áfram í dag Laugardag er þeir sigruðu Skagamenn á heimavelli 1-0. Sigurmark leiksinns skoraði fyrirliði liðsinns Hlynur Stefánsson sem er nú heldur betur búinn að skora mikilvæg mörk fyrir liðið upp á síðkastið.

Leikurinn var nokkuð fjörugur og fengu bæði lið ágætis færi til að setja blöðruna í netið en góð markvarsla og þá helst hjá Birki í Eyjamarkinu varð til þess að mörkin urðu ekki fleiri.

Með sigrinum skutust Eyjamenn upp í 4. sæti deidarinnar á kostnað Skagamanna sem sitja í 5. sætinu með 15 stig.