Fowler á leið til City ?? Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá mörgum að Robbie Fowler leikmaður Leeds er á leið til Manchester. Hann er reyndar á leið til litla liðsins í Manchester borg, þótt að Sir Alex hafi áhuga á kauða. Leeds keyptu Fowler í fyrra á 11 milljónir punda hjá Liverpool við litla hrifningu stuðningsmanna Liverpool. Fowler hefur verið mikið meiddur á sínum ferli og hafa meiðsl einmitt komið í veg fyrir sæti hans í byrjunarliði Terry Venables.

Robbie Fowler er frábær framherji þegar hann er í stuði. Hann skoraði t.a.m. “hat trick” í sínum fyrsta meistaraflokk sínum fyrir Liverpool. Kevin Keegan stjóra Manchester City hefur verið sagt að ef hann ætli sér að kaupa fleiri leikmenn til City þá þurfi hann að selja menn og hefur Shaun Goater verið nefndur í því samhengi.

Það verður gaman að sjá hvernig fer með þetta allt saman, kær kveðja gummo55