Neil lennon gekk i morgun i raðir Celtic er hann skrifaði undir samning við liðið, en Celtic greiðir Leicester 5,75 milljónir punda fyrir hann.

Svo gæti farið að Emmanuel Petit snúi aftur til Arsenal, en honum hefur ekki gengið vel á Spáni og er byrjaður gagnrýna þjálfara Barcelona í þarlendum blöðum og telja menn að hugsanlega fari hann fyrir lítið.

Að lokum er Inter tilbúið að selja Robbie Keane ef þeir fá fyrsta kauprétt á undrabarninu Harry Kewell, þykir þetta vera snjallt útspil hjá þeim inter mönnum sem hafa lítil not fyrir Robbie og fá hugsanlega meira fyrir hann en þeir borguðu síðasta sumar.