Vandræðagemsinn Stan “The Man” Collymore lennti enn einu sinni í vandræði. Ráðist var á hann á næturklúbbi í Birmingham á laugardaginn en eins og flestir vita var hann leikmaður hjá Aston Villa í sömu borg og var hann barinn þar í andlitið. Hann ætti að geta tekið þátt í næsta leik Bradford.

Leikmenn Galatasaray hafa farið í verkfall þar sem þeir hafa ekki fengið bónusana sína greidda. Leikmenn liðsins tóku sig saman og fóru í verkfall. Þetta gæti háð þeim í næsta evrópuleik því fái þeir ekki launin sín greidd mæta þeir kannski ekki í leikinn.