Hinn 31 árs gamli framherji Chelsea, Pierluigi Casiraghi sem kostaði 5,4 milljónir punda, er ennþá meiddur eftir samstuð við markvörð West Ham, Shaka Hislop. Það atvik átti sér stað fyrir tveimur árum og nú í dag fer hann í sína tíundu aðgerð, sú aðgerð mun skera upp úr því hvort hann getur haldið áfram sem atvinnumaður. Þó svo að aðgerðin takist vel, þá neyðist Cashiraghi til að eyða fimm til sex mánuðum í endurhæfingu.