Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea hefur lýst því yfir að það ætli sér að reyna að kaupa írska landsliðsmanninn Robbie Keane frá Inter Milan fyrir um 13 milljónir punda. Keane hefur ekki verið í náðinni hjá ítalska liðinu undanfarið eða eftir að Marcello Lippi var rekinn. Leeds United mun einnig hafa hafið viðræður við Inter um kaup á leikmanninum. Líkast til þarf það lið sem hefur betur að fá leikmanninn að láni til að byrja með en þannig vill Inter standa að málinu. Chelsea er þegar með Christian Panucci í láni frá ítalska liðinu