Eistland vann Ísland í Snjóbolta! Íslendingar léku í dag vináttulandsleik í fótbolta gegn Eistlandi í Tallin. Aðstæður voru hreint út sagt hrikalegar en völlurinn var þakinn snjó. Eina markskot Eistlands í fyrri hálfleik kom á 7.mínútu þegar Andreas Oper skaut í þverslá íslenska marksins. Eftir hálftíma leik fékk Helgi Sigurðsson opið marktækifæri, einn gegn Mart Poom markverði, en skaut beint á hann. Tveimur mínútum síðar slapp Tryggvi Guðmundsson inn í vítateig Eista og var felldur. Dómari leiksins dæmdi aukaspyrnu á vítateigslínu en í endursýningu sást vel að brotið átti sér stað innan vítateigs. Mínútu fyrir lok fyrri hálfleiks tók Þórður Guðjónsson aukaspyrnu frá vinstri og Hermann Hreiðarsson skallaði boltann í stöng eistneska marksins. En engin urðu mörkin í fyrri hálfleik.

Ísland var sterkari aðilinn framan af síðari hálfleik og átti nokkur ágæt markskot. Þórður Guðjónsson það besta þegar hann reyndi að lyfta yfir Mart Poom af 20 metra færi en Poom náði að verja. Það var síðan Eistland sem náði forystunni á 75. mínútu, nokkrum sekúndum eftir þrefalda skiptingu Íslands. Kristen Viikmäe slapp inn í vítateig Íslands og skoraði með góðu skoti, framhjá Birki Kristinssyni sem nýkominn var inná. Úlfurinn Ívar Ingimarsson fékk gott færi til að jafna á 80. mínútu en skallaði rétt framhjá marki Eistlands af markteig. Reiðarslagið kom svo á 85.mínútu þegar Andreas Oper kom Eistlandi í 2-0. Það urðu síðan lokatölur leiksins. Íslenska liðið átti 10 markskot í leiknum en Eistar 5. Ísland fékk 4 hornspyrnur en Eistland 2.

Íslenska landsliðið í knattspyrnu er í 56. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag og er þetta sama sæti og Íslendingar voru í fyrir mánuði síðan. Þeir komast þó ekki mikið hærra á listanum eftir úrslit dagsins.