Tveir af framherjum Leicester City, Trevor Benjamin og Darren Eadie, eru meiddir og verða líklega ekki með gegn Leeds á morgun. Þar með aukast líkurnar á því að Arnar Gunnlaugsson verði í byrjunarliðinu en hann byrjaði aftur að æfa með Leicester í vikunni eftir að hafa farið í botnlangaaðgerð. Peter Taylor, knattspyrnustjóri Leicester, sagði fyrr í vikunni að valið stæði á milli Eadie, Arnars og Richard Cresswells um framherjastöðuna.