Þegar enski landsliðið var tilkynnt á dögunum voru ekki mörg
ný andlit þar. En einn maður stóð upp úr, það var fyrrum Man.
Utd. strákurinn Jonathan Greening. Hann er búinn að vera
frábær það sem af er tímabilinu og átti til að mynda stórleik
gegn Liverpool. En það er kannski of snemmt að velja hann í
enska landsliðið? Eða hvað?

En annar maður sem var ekki valinn var Lee Bowyer. Í sumar
voru nokkrir orðrómar um að hann myndi fara til Liverpool en
ekkert varð af því. Hann Bowyer er þekktur fyrir þverhlaup sín
sem getur sundrað vörnum andstæðinganna. Hann var
valinn í landsliðið fyrir æfingaleikinn gegn Portúgölum og átti
þar góðan leik og lagði meðal annars upp sigurmarkið fyrir
félaga sinn hjá Leeds, Alan Smith.

En nú er stóra spurningin: Hvor er betri og hvor á skilið að
vera í landsliðinu?