Framherjinn Richard Naylor, félagi Hermanns Hreiðarssonar hjá Ipswich, hefur upplýst að hann hafi spilað fótbrotinn í síðustu þremur leikjum. Hann segist hafa haldið að sá mikili sársauki sem hann fann til hafi verið tengdur tveimur aðgerðum sem hann hefur farið í á hné en þegar málið var skoðað kom í ljós sprunga neðarlega í lærlegg.