Hvernig væri nú að leyfa könnununum sem koma að vera uppi í a.m.k. 3-4 daga? Ég er einn af þeim sem vill endilega fá að vita með hverjum fólkið hérna heldur í enska boltanum. Nú er sú könnun búin að koma tvisvar og í bæði skiptin hafa í kringum 50 manns svarað henni áður en einhver sendir inn nýja könnun, 1-2 dögum seinna. Aðrar kannanir hafa verið að fá í kringum 170 svör svo það eru augljóslega fleiri en 50 manns sem hafa einhverja skoðun hérna. Það að við notendurnir getum sent inn kannanir er allt gott og blessað en væri ekki einhvern veginn hægt að takmarka hversu ört er skipt um könnun? Til dæmis að það væri bara skipt um kannanir á mánudögum og sá sem sér um ensku deildina hérna gæti þá valið úr bestu könnunina af þeim sem eru sendar inn?
kv.