Mikilvægasti leikur Basel frá upphafi verður gegn Liverpool í kvöld er þeir mætast í Swiss í kvöld. Basel nægir jafntefli en tapi þeir fara Poolarar upp. Það er því alveg ljóst að það verður hart barist.

Houllier er reyndar alls ekkert stressaður: “Við höfum styrkst andlega til að yfirstíga vandamál. Basel leikurinn verður vettvangur til að sína að við getum gert mjög sérstaka hluti.
Við vorum í sömu stöðu í fyrra þegar við þurftum ða vinna síðasta leikinn til að komast áfram.

En aðalstjarna Basel, Julio Hernan Rossi, varar Liverpool við að þessi leikur verður alls ekki auðveldur.

Hann sagði: ”Við ætlum ekki að láta jafntefli duga, það verður allt of tvísýnt. Við erum mjög hátt uppi í augnablikinu og erum með mjög mikið sjálfstraust. Það er líka alveg frábært að þurfa ekki að treysta á úrslit í öðrum leikjum.