Sælir huganotendur, eftir mikið rammakvein yfir þessu áhugamáli hef ég ákveðið að vera stjórnandi og ætla ég að reyna kveikja nottkra neista í þessu áhugamáli og gera það líflegra. T.d er youtube komið inná og þið notendur hjálpið mér að halda nýju videoi vikulega. Svo ætla ég að koma af stað eins og held ég öll hin tónlistaráhugamálin á huga hafa sem eru handahófskenndar greinar tónlistarmanna. En mín hugmynd væri að hafa kosningu um tónlistarmann mánaðarins, þið sem notendur getið sagt eitthvað nafn og svo er kosið bara og sá sem vinnur fær þann heiður að rita stuttan pistill um þann sem hann valdi og mun það vera titlað tónsmiður/tónlistarmaður mánaðarins.
//