Af tilefni sumarlegasta dags sumarsins (á höfuðborgarsvæðinu að minnsta kosti) spyr ég ykkur hvort þið vitið um einhverja mjög sumarlega tónlist, klassíska sem sagt. Sjálfur kann ég mjög lítið fyrir mér í þeim efnum nema að ég veit hvað mér finnst um “Summer Music” eftir Barber, mér fannst það sumarlegasta tónlist sem ég hafði heyrt áður en ég vissi nafnið á henni.