Ég ákvað að bíða fram yfir próf með svona leiðindi, en mér skilst að próf séu almennt búin í framhaldsskólum og háskólum þannig að hér kemur nöldrið.

Ef þetta áhugamál er að deyja er það útaf adminunum…

Núna held ég að adminar þessa áhugamáls séu alveg endanlega löngu dauðir. Ég sendi inn grein fyrir meira en þremur vikum um tónskáldið Franz Liszt, persónulega finnst mér þetta vera mín besta ritgerð hingað til (ég hef mætt ritgerðarkröfum MH þannig að þessi ritgerð er allavega svona ágæt) og henni hefur varla verið hafnað.

Svo er sama könnunin búin að vera hér heillengi.