Ætlar einhver hér í prufu fyrir Orkester Norden?
Hefur einhver hér spilað með Orkester Norden?

Fyrir þá sem botna ekkert í þessu er Orkester Norden norræn sinfóníuhljómsveit fyrir ungt fólk. Krakkar frá Svíðþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Íslandi mega skrá sig og fara í prufur. Þeir sem komast inn æfa og spila út um allt næsta sumar.

Ég er búinn að skrá mig og fer í prufu rétt eftir áramótin. Kemst örugglega ekki inn í hljómsveitina enda enginn sérstakur músíkant (nóg er af góðu tónlistarfólki hér, og hvað þá á öllum Norðurlöndunum). En það sakar ekki að reyna.

http://www.orkesternorden.rikskonserter.se/