Afhverju er verið að spyrja um hluti endalaust eins og hvaða hljóðfæri menn spili á, hvort þeir spili á hljóðfæri, hvort þeir hlusti á klassík og svo framvegis. Er ekki hægt að gera skemmtilegri kannanir sem kanna viðhorf fólks og svo framvegis eða velta vöngum yfir einhverju sem höfðar meira til fólks með einhvern bakgrunn í klassík yfirhöfuð? Notið ímyndunaraflið! Þið getið það. Látum þetta áhugamál ekki koðna niður í meðalmennsku.