Ég ættla að óska öllum unnendum klassískrar tónlistar til hamingju með þetta áhugamál og ég vona að það verði mjög virkt.
Þótt það hafi haft áhrif eða ekki þá hafði ég fyrir því að safna 94 undirskriftum fyrir þessu áhugamáli og í þeim hópi voru þrír hugarar sem vildu verða adminar. Ég vona að þeir hafi sent umsóknirnar sínar sem fyrst og ég vona að Vefstjóri verði en fljótur að svara þeim :)
En adminarnir eru:

larandaria; sem hefur æft sjö ár á píanó og eitt ár á alls kyns skemmtileg hljóðfæri, eins og óbó svo það besta sé nefnt ;)

Harrier; hann hefur æft 7 ár á klarínett

kvkhamlet; 7 ár á píanó, 5 ár söng og svo 5 ár af tónfræði og blokkflautugrunn (eitt ár).

Kv.
Kreoli